Thalictrum dioicum

Ættkvísl
Thalictrum
Nafn
dioicum
Íslenskt nafn
Sérbýlisgras
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Mógrænn.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
- 90 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, stönglar allt að 90 sm háir. Flest grunnlaufin eru skipt og með legg. Smálauf nýrlaga til ögugegglaga, oddlaus eða bogtennt.
Lýsing
Blómstrar snemma sumars, blómin eru óásjáleg.
Uppruni
N Ameríka.
Harka
4
Heimildir
= 1, HHP
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í blómaengi. Vex í skóglendi, helst í brekkum sem snúa til norðurs í heimkynnum sínum.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1992, þrífst vel og sáir sér.
Útbreiðsla
Þessi planta er sjaldan ræktuð (í Evrópu), en er auðræktuð í skuggsælum villigróðri vegna fallegra, fölgrænna laufanna sem standa langt fram á vetur.