Thalictrum morisonii

Ættkvísl
Thalictrum
Nafn
morisonii
Íslenskt nafn
Hagagras*
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Samheiti
T. exaltatum Gauchin, T. flavum L. ssp. exaltatum Gauchin (Bonnier) & Layens.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Grænn.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
50-200 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, meira eða minna hárlaus, 50-200 sm há. Jarðstönglar skriðulir. Stönglar hárlausir, holir, stinnir og háir.
Lýsing
Lauf stakstæð, 2-3 fjaðurskipt, lengri en þau eru breið. Blaðka stöngullaufa bandlaga, heilrend. Blöðkur grunnlaufa aflangar, fleyglaga. Blómskipunin skúfur. Blóm nokkur saman í knippum. Bikarblöð engin. Krónublöð 4, smá. Fræflar fjölmargir, uppréttir, miklu lengri en blómhlífin. Frjóhnappar oddlausir eða stuttyddir. Aldinið hneta.
Uppruni
Evrasía.
Heimildir
4 + NETIÐ
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð.
Reynsla
í C6 frá 1993 - hefur reynst vel.