Thlaspi rotundifolium

Ættkvísl
Thlaspi
Nafn
rotundifolium
Íslenskt nafn
Perlusjóður
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Purpura til bleikur.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
5-10 sm
Vaxtarlag
Lausþýfður fjölæringur, sem myndar breiður, breiðist út með renglum, oftast 5-10 sm hár í blóma. Grunnlaufin í hvirfingum, oft dálítið teygð eða strjál, breiðegglaga, meira eða minna kjötkennd og með dálítið ógreinilegar tennur.
Lýsing
Blómin eru purpura til bleik, allt að 1 sm löng, með hunangsilm, í koll-líkum klösum.
Uppruni
A Frakkland til Ítalíu og N Júgóslavíu.
Heimildir
= encyclopaedia.alpinegardensociety.net/plants/Thlaspi/rotundifolium
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í hleðslur, í kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til planta sem sáð var til 2007 og gróðursett í beð 2008, þrífst vel og önnur sem sáð var til 2013.Harðgerð-meðalharðgerð, hefur reynst vel á Akureyri, má alls ekki vera nálægt gróskumiklum plöntum (verður undir). Heldur sér oft við með sáningu en stundum missir maður plöntuna.
Yrki og undirteg.
Thlaspi rotundifolium ssp. cenisium er frábrugðin að því leyti að skálparnir eru mjórri og yddir. Thlaspi rotundifolium ssp. cepifolium myndar breiður þar sem grunnlaufin eru í teygðum hvirfingum á stönglunum. Heimkynni: SA Alpar. Thlaspi rotundifolium v. limosellifolium (syn. T. limosellifolium) er þýfðari og þéttari, með oddbaugótt grunn lauf og minni rósbleik blóm í 4-6 sm háum, koll líkum klösum. Blómviljug. Heimkynni. V Alpafjöll.