Thuja occidentalis

Ættkvísl
Thuja
Nafn
occidentalis
Íslenskt nafn
Kanadalífviður
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi, skjól.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
1,5-3(-20) m
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Óreglulega keilulaga tré, allt að 20 m eða margstofna runni, stuttar nær láréttar greinar og margskiptar. Neðri greinar útréttar. Flatar smágreinar sem minna á burkna eða blævæng.
Lýsing
Barr fremur þéttstæð, dökkgræn ofan jafn gulgræn neðan, oft gulbrún að vetrinum, sum upprétt á ungum trjám, hanga seinna niður. Barr u.þ.b. 2,5 mm, þríhyrnd, með greinilega upphleypta, sporbaugótta eða kringlótta kirtla, með ramma lykt/kryddkennda eplalykt, ef þau eru marin. ♂ reklar 1 mm, dökkrauðir. Fullþroska könglar egglaga, um það bil 1 sm, fyrst uppréttir, síðan hangandi og opnast. Könglarnir eru með 8-10 hreistur, þau miðstæðu eru frjó. Hreistrin verða að lokum trékennd að hluta, nokkuð þykk og mjög útrétt. Fræin eru með mjóa vængi á jöðrunum.
Uppruni
Austur N-Ameríka.
Harka
2
Heimildir
1,2
Fjölgun
Sáning, vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í steinhæð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til nokkrar plöntur sem sáð var 1988 (2) gróðursettar í beð 2001 og 2004; 1995 (1) gróðursett í beð 2004; 1996 (1) gróðursett í beð 2001; 1997 (1) gróðursett 2001 og 1989 (1) gróðursett 2001. Flestar plantnanna hafa kalið nokkuð allra fyrstu árin. Þolir vel klippingu, verður allt að 400 ára gamall, þolir að vaxa í súrum jarðvegi.
Yrki og undirteg.
Til er fjöldi garðafbrigða /yrkja sem eru breytileg að stærð og formi.