Thuja occidentalis

Ættkvísl
Thuja
Nafn
occidentalis
Yrki form
Compacta
Íslenskt nafn
Kanadalífviður
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænt lítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
- 2 m
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Yrki með egglaga til keilulaga og þétta krónu, hægvaxta en samt ekki dvergform, allt að 2 m hátt og 1 m breitt.
Lýsing
Smágreinar grófar og flatar. Nálar dálítið blágrænar.
Uppruni
Yrki.
Harka
Z2
Heimildir
= 7
Fjölgun
Vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í raðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1996, gróðursettar í beð 2001. Vetrarskýling 2001-2007. Þrífast vel, önnur plantan kól lítið eitt fyrsta árið, annars hafa þær ekki kalið.