Thuja occidentalis

Ættkvísl
Thuja
Nafn
occidentalis
Yrki form
Spiralis
Íslenskt nafn
Kanadalífviður
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænt tré
Kjörlendi
Sól
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
5 (-15) m
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Grannt, keilulaga yrki, vex hratt og er þétt, 10-12 m hátt.
Lýsing
Ungar greinar áberandi skrúfulaga og dálítið undnar. Smágreinar minna dálítið á burkna. Nálar bláleitar.
Uppruni
Yrki.
Harka
Z 2
Heimildir
= 7
Fjölgun
Vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í raðir, í þyrpingar, í blönduð trjá- og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1989, gróðursettar í beð 2001. Vetrarskýling 2001-2007. Kal stöku ár, mjög lítið, annars ekkert, hægvaxta, þrífast vel.