Thuja plicata

Ættkvísl
Thuja
Nafn
plicata
Íslenskt nafn
Risalífviður
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænn runni eða tré.
Kjörlendi
Hálfskuggi eða sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Snemma vors.
Hæð
1-15 m (50 m)
Vaxtarlag
Keilulaga tré. allt að um 50 m í heimkynnum sínum. Greinar útréttar á gömlum trjám, vita upp á við.
Lýsing
Barr í flötum opnum greinakerfum, dökkt, glansandi, grátt ofan, ljósara neðan með hvíta bletti á neðra borði, ilma eins og ávextir ef þau eru rétt aðeins snert, lykt minnir á ananas Barr 3-6 mm með ógreinilega kringlótta kirtla ♂ könglar 2 mm dökkrauðir. Fullþroska könglar 1-1.5 sm, egglaga, rauðbrúnir úr 8-10 hreistruð, þau miðstæðu frjó. Hreistur verða þykk og trékennd með aldrinum, með bogadregna enda. Fræ með vængi allan hringinn.
Uppruni
Vestur N Ameríka.
Harka
6
Heimildir
1, 2
Fjölgun
Sáning, vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í trjábeð, í þyrpingar, sem stakstæð tré.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til plöntur sem voru keyptar 1993 og 1999. Þrífast vel og kala lítið.Verður allt að 800 ára, talin of viðkvæm til ræktunar hérlendis en hefur staðið sig með prýði það sem af er í garðinum
Yrki og undirteg.
Fjölmörg yrki í ræktun í USA.