Thuja standshii

Ættkvísl
Thuja
Nafn
standshii
Íslenskt nafn
Japanslífviður
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Hálfskuggi eða sól.
Blómalitur
Kk. reklar dökkrauðleitir
Hæð
Allt að 20 m
Vaxtarlag
Breiðkeilulaga tré, allt að 20 m í heimkynnum sínum, neðri greinar útréttar og vita upp á við. Greinasprotar mynda óreglulega flöt greinakerfi eins og þræðir, gulleit eða grágræn með litla, hvítleita bletti á neðra borði, ilma eins og sítróna ef þeir eru marðir.
Lýsing
Barr u.þ.b. 2 mm, Kirtlar ógreinilegir; barrið ofan á greinunum er dálítið úttútnað svo að smágreinarnar eru bogadregnar að ofan. ♂ reklar u.þ.b. 1 mm dökkrauðleitir. Fullþroska könglar mjó-egglaga, brúnir úr u.þ.b. 10 hreistrum. Miðstæðu köngulhreistrin frjó, öll hreistrin trékennd, að hluta með breiða enda, þau frjóu með 3 fræ. Vængur fræja nær næstum allan hringinn utan um þau.
Uppruni
N & S Japan.
Harka
H1
Heimildir
2
Fjölgun
Sáning, vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í trjábeð, í þyrpingar, sem stakstæð tré.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1999, gróðursett í beð 2006. Þrífst vel, ekkert kal.