Tsuga mertensiana

Ættkvísl
Tsuga
Nafn
mertensiana
Íslenskt nafn
Fjallaþöll
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Grænn, gulur.
Blómgunartími
Apríl.
Hæð
4-15(-45) m
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Tré sem verður um 30 m hátt í heimkynnum sínum, stundum hærri, krónan mjókeilulaga, greinar og ungar greinar grannar og slútandi. Toppsproti skástæður (ekki hangandi/slútandi eins og á marþöll).
Lýsing
Brum ydd, egglaga. Ungir sprotar rauðbrúnir, hærðir tvö fyrstu árin. Barrnálar allan hringinn á greinunum, bandlaga, 10-20 mm löng, 1-1,2 mm breið, snubbótt, kúpt ofan og oft líka með kjöl, næstum kringlótt í þversnið heilrend, loftaugarendur bæði ofan og neðan, grágræn til silfurhvít. Könglar legglausir, ílangir til sívalir, mjókka smám saman dálítið til beggja enda, 5-8 sm langir, 1 sm breiðir, blápurpura þegar þeir eru ungir. Köngulhreistur þunn, breiðari en þau eru löng, hærð, jaðrar óreglulega tenntir, fræ 5 mm löng, vængir 9 mm langir. Köngulhreistur sveigjast út og aftur þegar köngull opnast. Fræið fellur yfir veturinn en könglar að vori.
Uppruni
V N-Ameríka frá suður Alaska til norður Monana , Idaho og Kaliforníu, í fjöllum á stöku stað með ströndinni.
Harka
4
Heimildir
1, 7
Fjölgun
Sáning, vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, stök tré, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur, önnur keypt 1985 og gróðursett í beð það ár, til hinnar var sáð 1999, gróðursett í beð 2007. Sú eldri kól af og til fyrstu árin en þrífst nú (2011) vel.Þrífst þokkalega vel í Lystigarðinum en hefur ekki komið verulega vel út í skógrækt hérlendis en ætti að vera harðger miðað við útbreiðslusvæði. Þarf að vetrarskýla a.m.k. framan af aldri.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun USA.