Tulipa gesneriana

Ættkvísl
Tulipa
Nafn
gesneriana
Íslenskt nafn
Garðatúlípani
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
T. billentiana Jordan, T. bonerotiana Reboul, T. connivens Levier, F. etrusca Levier, T. pubescens Willdenow, T. sommieri Levier, T. spathulata Bertoloni, T. variegata Reboul
Lífsform
Laukjurt.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Með rauðar rákir, allir einfaldir.
Blómgunartími
Vorblómstrandi.
Hæð
20-80 sm
Vaxtarlag
Laukur egglaga, laukhýði hárlaust að innan verðu eða með nokkur hár efst.
Lýsing
Blómstöngull 30-40 sm, hárlaus eða með fíngerð dúnhár. Lauf 2-7 talsins, græn, hárlaus, jaðrar randhærðir við oddinn. Knúppar uppréttir. Blóm stök, blómhlífarblöð 4-8,2 sm, innri breiðari en þau ytri, rauð, appelsínugul, gul eða purpura, stundum flikrótt (vegna veirusýkingar) með eða án guls eða svartleits bletts við grunninn sem getur verið með gulan kant. Frjóþræðir gulir eða purpuralitir, frjóhnappar purpura eða gulir. Uppruni er óþekktur, líklega SV & S M-Asía, hefur numið land í Evrópu.Óteljandi sortir og ekki er til neitt um Það hverjar hafa gengið best hérlendis
Uppruni
SV & M-Asía.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð.
Reynsla
Talin formóðir fjölda yrkja sem seld eru um allan heim í dag. Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni, þrífst vel.