Tulipa humilis

Ættkvísl
Tulipa
Nafn
humilis
Íslenskt nafn
Fjólutúlípani
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Laukur.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Fölbleikur með gula miðju.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
20 sm
Vaxtarlag
Mjög breytileg tegund. Laukar 1-2 sm í þvermál, egglaga, laukhýði brúnt með gula eða rauða slikju, ögn hært á innra borði við grunn og efst.
Lýsing
Blómstönglar 20 sm háir, 1-3. Lauf 10-15 x 1 sm, 2-5 talsins, rennulaga, dálítið bláleit. Blómin stök eða allt að 3, bollalaga, mynda 'stjörnu' þegar þau springa út, fölbleik, gul í miðjunni. Blómhlífarblöð 2-5 x 1-2 sm, hvassydd, innri blómhlífarblöð lengri en þau ytri. Frjóþræðir hærðir, gulir eða purpura. Frjóhnappar gulir, frjókorn gul, blá eða græn.
Uppruni
SA Tyrkland, N & V Íran, N Írak, Azerbaidjan.
Harka
7
Heimildir
1
Fjölgun
Hliðarlaukar, sáning.
Notkun/nytjar
Í kanta, í steinhæðir, í skrautblómabeð.
Reynsla
Þrífst með ágætum í Grasagarði Reykjavíkur, er ekki í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
'Violacea' er með djúpfjólublá blóm með gula miðju.