Tulipa kaufmanniana

Ættkvísl
Tulipa
Nafn
kaufmanniana
Íslenskt nafn
Kaupmannatúlípani
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Laukur (15)
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur-ljósgulur m/rauðum röndum.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
20-40 sm
Vaxtarlag
Laukar 1,5-8 sm í þvermál, mjóir, laukhýði svart og leðurkennt til gulbrúnt og pappírskennt, líning á innra borði með aðlæg, gullin hár, hæringin þéttari við toppinn og grunninn.
Lýsing
Stönglar allt að 50 sm, efti hlutinn dúnhærður, stundum hárlaus, með rauðleita slikju. Lauf 2-20 sm breið, 2-5 talsins, þétt saman, mynda oft hvirfingu við grunninn, lensulaga til öfuglensulaga, ögn bylgjuð, föl grá-græn, æðarnar dekkri, hárlaus nema smárandhærð. Blóm 1-5, stjörnulaga til bjöllulaga til bollalaga, oft ilmandi. Blómhlífarblöð allt að 11 x 5 sm, hvít eða rjómalit stundum með gul eða múrsteinsrauð blæbrigði, ytri blómhlífarblöð lensulaga til breiðlensulaga, oft baksveigð, grunnblettur gulur, ytra borð rautt eða bleikt eftir miðrifinu. Innri blómhlífarblöð oft upprétt, lang-oddbaugótt eða lang-tígullaga, snubbótt, stundum marglit, miðrif oft grænt eða rautt á ljóslitum formum, grunnblettur blævængslaga, skærgulur. Frjóþræðir hárlausir, gulir, frjóhnappar snúnir, gulir.
Uppruni
M Asía.
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Hliðarlaukar, sáning, skammlífur, endurnýja þarf hann eftir 2-3 ár.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skrautblómabeð.
Reynsla
Harðgerð plants sem betra er að skýla að vetrinum.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki hafa verið reynd í Lystigarðinum svo sem 'Abba' með rauð, fyllt blóm, snemmblómstrandi, 'Corona' með gul krónublöð, rauðmenguð utan, rauður hringur í miðju, sein, 'Giuseppe Verdi' stór gullgul blóm, rauð að innan og fagurrauð á ytra borði. Johan Strauss' fölgulur/fölrauður, 'Pink Dwarf' purpurableik blóm, 'Scarlet Baby' skarlatsrauður með bleika slikju, gul miðja, snemmblómstrandi. 'Showwinner' hárauð blóm, 'Stresa' gul og rauð blóm. Öll hafa reynst skammlíf. Mörg önnur yrki eru til svo sem: 'The First' með hvít blóm, 'Hearts Delight' með hvít/rauð blóm. 'Daylight, 'Cesar Franck', 'Alfred Cortot', 'Josef Kafka' og mörg fleiri.