Vaccinium angustifolium

Ættkvísl
Vaccinium
Nafn
angustifolium
Íslenskt nafn
Runnabláber
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Samheiti
Vaccinium angustifolium Ait. v. hypolasium Fernald.
Lífsform
Lágvaxinn runni.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur með bleikri slikju.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-30 sm
Vaxtarlag
Lágvaxin runnabreiða. Myndar stórar þéttar breiður, 10-30 sm, ársprotarnir grænir til bláleitir, hárlausir til hærðir.
Lýsing
Laufið sumargræn, blaðkan dökk- til ljósgræn eða bláleit, oddbaugótt til mjó-oddbaugótt, 15-41 × (5-)6-16(-20) mm, jaðrar venjulega hvasstenntir, tennurnar jafn stórar, (tennurnar stundum mjög smáar með kirtil á legg í oddinn) hárlaus eða hærð á bæði ofan og neðan einkum meðfram miðstrengnum, kirtlalaus á neðra borði. Blómin í stuttum þéttum axlastæðum klösum. Bikar grænn, bláleitur, hárlaus, bikarblöð ydd. Króna oftast hvít, pípulaga-bjöllulaga, 6-7 mm, krónutunga dálítið samandregnar, hvít með grænni slikju, oft með rauðar rákir. Krónuflipar 5, snubbóttir, baksveigðir. Frjóþræðir með kögur. Berin eru hnöttótt, svört eða blá, sjaldan hvít, döggvuð, (3-)6-12 mm í þvermál, slétt, sæt á bragðið.
Uppruni
NA-Norður Ameríka.
Harka
Z2
Heimildir
= 1,eFloras.org Flora of N-America,http://davesgarden.com, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Vaccinium+angustifolium
Fjölgun
Fjölgað með fræi eða með sumargræðlingum.
Notkun/nytjar
Í beð.
Reynsla
Yfirleitt ekkert eða lítið kal gegnum árin, engin blóm.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Þarf sírakan jarðveg. Látið moldina ekki þorna milli þess sem vökvað er. Mjög súr jarðvegur.