Vaccinium corymbosum

Ættkvísl
Vaccinium
Nafn
corymbosum
Íslenskt nafn
Fenjabláber
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Samheiti
Cyanococcus amoenus (Aiton) Small; C. atrococcus (A. Gray) Small; C. corymbosus (Linnaeus) Rydberg; C. cuthbertii Small; C. elliottii (Chapman) Small; C. fuscatus (Aiton) Small; C. holophyllus Small; C. margarettae (Ashe) Small; C. simulatus (Small) Small; C. virgatus (Aiton) Small; Vaccinium amoenum Aiton; V. atrococcum (A. Gray) A. Heller; V. australe Small; V. constablaei A. Gray; V. corymbosum var. albiflorum (Hooker) Fernald; V. corymbosum var. glabrum A. Gray; V. elliottii Chapman; V. formosum Andrews; V. fuscatum Aiton; V. simulatum Small; V. virgatum Aiton.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur, dálítið rauðleit.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
100-200 sm
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, 1-2 m hár. Greinar gulgrænar, sívalar til kantaðarm hárlausar eða ögn dúnhærðar rákir, vörtóttar.
Lýsing
Lauf hálf-leðurkennd, 3-8 sm, dökkgræn, egglaga til lensulaga, 15-70 × 10-25 mm, heilrend eða jaðrar hvasssagtenntir, appelsínulit til skarlatsrauð að haustinu, hárlaus bæði ofan og neðan, æðastrengir dálítið hærðir á neðra borði. Blómin í þéttum klösum, bikar hárlaus grænn, blámengaður, króna pípu-krukkulaga til mjóegglaga, 6-10 mm, hvít eða dálítið rauðleit, 5-12 mm. Frjóþræðir oftast hærðir. Ber hnöttótt, 8-15 mm, mött, blásvört, mikið döggvuð, sæt og bragðgóð.v. albiflorum (Hook.) Fern.laufin fínlega smátennt til randhærð-sagtennt, skærgræn.
Uppruni
A Norður-Ameríka.
Heimildir
1, eFloras.org Flora of North America,http://www.backyardgardener.com, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Vaccinium+corymbosum
Fjölgun
Með fræi eða græðlingum.
Notkun/nytjar
Í beð eða ker.
Reynsla
Sáð í Lystigarðinum 1992, gróðursett í beð 2001 og 2010 var ekkert kal og engin blóm.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki af V. corymbosum eru komnar í sölu hérlendis, þ. e. Alvar, Aino, North Sky, North Blue og Chippewa.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Bláber þurfa súran jarðveg.Ef rækta á þessar plöntur í kerum þarf að vökva þær oftar en ella. 2-3 hvert ár ætti að endurnýja moldina í kerinu eða bæta hann með lífrænum áburði. Lyng sem er ræktað í beði þarf reglulega vökvun, en látið jarðveginn þorna á milli, vökvið vel með 2-3 vikna millibili.Plöntuna ætti að rækta í hálfskugga þar sem sólin skín á hana aðeins á kaldasta tíma dagsins. Til að koma í veg fyrir skemmdir vegna frosta ætti að skýla runnanum með því að þekja jarðveginn kringum plöntuna með hálmi eða þurru laufi.