Vaccinium corymbosum

Ættkvísl
Vaccinium
Nafn
corymbosum
Yrki form
Alvar
Íslenskt nafn
Fenjabláber
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður til hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur til bleikleitur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
90-100 sm
Lýsing
Finnskt yrki, um 1 m hátt og álíka breitt, bláberjablendingur af sumum talin af V. angustifolium-grúppunni. Berin eru í klösum, meðalstór, dökkblá, mild og sæt. Góð til að frysta. Er ekki sjálffrjógandi,og þarf þess vegna annan frjógjafa t. d. V. corymbosum Aino.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
http://www.odla.nu, http://www.natthagi.is, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Vaccinium+corymbosum
Fjölgun
Skipting, græðlingar..
Notkun/nytjar
Í beð eða ker.
Reynsla
Kom í Lystigarðinn 2009, gróðursett í beð 2009, 2010 var ekkert kal, engin blóm.