Vaccinium vitis-idaea

Ættkvísl
Vaccinium
Nafn
vitis-idaea
Íslenskt nafn
Rauðberjalyng
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur til bleikur.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
10-30 sm
Vaxtarlag
Líkist sortulyngi, uppsveigðar greinar, jarðlæg.
Lýsing
Skriðull runni, 10-30 sm hár, sígrænn. Lauf 1-1,5 sm, öfugegglaga til egglaga og snubbótt, oft framjöðruð. Glansandi græn á efra borði, ljósgrænni og með dökkar doppur á neðra borði, leðurkennd. Blómin í klösum nálægt toppi greinanna, lítil. Bikar 4-5 flipóttur. Króna bjöllulaga, hvít til bleik. 4-5 flipótt, fremur stór. Ber hnöttótt, 6 mm, skærrauð, æt.
Uppruni
Heimskautaplanta pólhverf. N Evrasía, Japan, N Ameríka
Harka
5
Heimildir
1, http://bolt.lakeheadu.ca, http://www.gardenology.org
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í náttúrulega garða, í beðkanta.
Reynsla
Nokkrar plöntur af erlendum uppruna eru til í Lystigarðinum.Yfirleitt ekkert kal gegnum árin, engin blóm.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Plantan er aðeins hálfrunnkennd, en heldur laufum sínum yfir veturinn, jafnvel yfir kaldasta tíma ársins, en það er óvenjulegt fyrir plöntur sem eru ekki barrplöntur, þó að snjórinn skýli þeim venjulega gegn miklum kuldum. Rauðberjalyngið er mjög harðgert, þolir -40°C eða meira frost, en vex illa þar sem sumrin eru heit. Það kýs heldur nokkurn skugga (svo sem skógþekju) og stöðugt rakan, súran jarðveg. Þolir magran jarðveg, en ekki kalkríkan.Vex á þúfum í mýrum, rökum skógum, hrjóstrugum klöppum, opnum brekkum, mjög algeng ofan trjálínu í Kanada.