Viburnum cotinifolium

Ættkvísl
Viburnum
Nafn
cotinifolium
Íslenskt nafn
Hauðnuber*
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur með bleika slikju.
Blómgunartími
Júní, fræ þroskast í október.
Hæð
- 3,5 m
Vaxtarlag
Útbreiddur, lauffellandi runni, allt að 3,5 m hár. Ungar smágreinar með þétta, gráa stjörnu-ullhæringu.
Lýsing
Lauf allt að 12,5 × 12 sm, egglaga, sporbaugótt eða hálfkringlótt, endar snögglega í löngum oddi eða er bogadregin í oddinn, grunnur bogadreginn. Laufin fín-bogtennt eða næstum alveg heilrend, fín hrukkótt og grá stjörnu-ullhærð ofan, þétthærðari neðan. Blómin hvít með bleika slikju, breið-trektlaga, 6,5 mm í þvermál, í hvelfdum, oftast 3-geisla skúfum, allt að 7,5 sm í þvermál. Aldin allt að 12,5 mm, egglaga, rauð, seinna svört. Blómin eru tvíkynja (þ.e. eru bæði með karl- og kven-líffæri) og eru frævuð af skordýrum. Plantan frjóvgar ekki sjálfa sig.
Uppruni
Himalaja (Bhutan til Baluchistan).
Harka
Z6
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Græðlingar, sáning. Fræinu er best að sá í sólreit strax og það hefur náð fullum þroska. Spírunin getur verið hæg og stundum tekur hún meira en 18 mánuði. Ef fræinu er safnað ´grænu´ (þegar það er þroskað en áður en það er trénað) og sáð strax í sólreit, ætti það að spíra næsta vor. Fræ sem hefur verið geymt þarf 2 mánaða hitameðferð og 3 mánað kuldameðferð og svo getur tekið það 18 mánuði að spíra. Dreifplantið ungplöntunum hverri í sinn pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla þær og látið þær vaxa áfram í sólreit eða gróðurhúsi. Gróðursetjið á framtíðarstaðinn síðla vors eða snemmsumars næsta ár. Sumargræðlingar eru settir í sólreit snemmsumars. Setjið hverja og eina plöntu í sinn pott strax og þær fara að rætast og gróðursetjið þær að vori eða snemsumars næsta ár. Sumargræðlingar eru teknir af hálftrénuðum viði, 5-8 sm langir með hæl er hægt að taka í júlí-ágúst og settir í sólreit. Plantið þeim hverjum í sinn pott strax og þeir fara að rætast. Það getur verið erfitt að láta þessa græðlinga lifa af veturinn. Best er að hafa þá í gróðurhúsi eða sólreit þar til næsta vors áður en græðlingarnir eru gróðursettir í beð. Haustgræðlingar eru hafðir í sólreit, þeir ættu að rætast snemma næsta vor. Setjið þá í potta þegar þeir eru orðnir nógu stórir til að handfjatla þá og plantið þeim út að sumrinu ef þeir hafa vaxið nógu mikið að öðrum kosti eru plönturnar hafðar í sólreit næsta vetur og gróðursetjið þær næsta vor. -----------------Sveiggræðsla á ársprotum fer fram í júlí-ágúst. Sveiggræðslan tekur 15 mánuði.
Notkun/nytjar
Í blönduð runnabeð. --- Auðræktuð planta, sem þrífst í flestum jarðvegsgerðum, en síst þó í mögrum og þurrum. Vex best í frjóum, djúpum. leirkenndum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Þolir allt að 15 °C. Plönturnar frjóvga sig ekki sjálfar, þurfa að vaxa með öðrum plöntum af sömu tegund ef þær eiga að geta myndað aldin og frjó fræ. Náskyldur lambarunna (V. lanata), en er ekki eins harðgerður og hann.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til þrjár plöntur úr sömu sáningunni sem sáð var til 2000 og tvær gróðursettar í beð 2004 og ein 2006, þrífast vel.