Viburnum trilobum

Ættkvísl
Viburnum
Nafn
trilobum
Íslenskt nafn
Svalaber
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Samheiti
Viburnum opulus L. ssp. trilobum
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júní og fræ er þroskað í september.
Hæð
1-1,5 (-3) m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 30 m hár, ársprotar hárlausir.
Lýsing
Laufin gagnstæð, allt að 12 sm, breið-þríflipótt, flipar landyddir, hliðarflipar ílangir og gróftenntir, stundum heilrendir. Laufin bogadregin við runninn, ljósgræn ofan, ljósari og ögn dúnhærð neðan, fagurrauð að haustinu. Laufleggir allt að 3 sm, oftast með litla leggjaða kirtla. Kirtlarnir kúptir til kylfulaga. Blómin hvít, í endastæðum skúf sem er allt að 10 sm í þvermál, fræflar standa út úr blóminu, frjóhnappar gulir. Ytri blómin ófrjó, 2-2,5 sm í þvermál með áberandi krónublöð, innan við þau er miðja með litlum (5 mm breiðum) frjóum blómum. Skordýr fræva blómin. Aldin eru steinaldin, 9 mm, hálfhnöttótt, skarlatsrauð. Blómin eru tvíkynja og frævuð af skordýrum, Plantan getur frjóvgað sig sjálf. ;
Uppruni
N Ameríka.
Harka
Z2 og er ekki viðkvæmur fyrir frosti
Heimildir
= 1, http://en.wikipedia.org, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning. Fjölgun.Fræinu er best að sá í sólreit strax og það hefur náð fullum þroska. Spírunin getur verið hæg og stundum tekur hún meira en 18 mánuði. Ef fræinu er safnað ´grænu´ (þegar það er þroskað en áður en það hefur trénað) og sáð strax í sólreit, ætti það að spíra næsta vor. Fræ sem hefur verið geymt þarf 2 mánaða hitameðferð og 3 mánað kuldameðferð og svo getur tekið það 18 mánuði að spíra. Dreifplantið ungplöntunum hverri í sinn pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla þær og látið þær vaxa áfram í sólreit eða gróðurhúsi. Gróðursetjið á framtíðarstaðinn síðla vors eða snemmsumars næsta ár. Sumargræðlingar eru settir í sólreit snemmsumars. Setjið hverja og eina plöntu í sinn pott strax og þær fara að rætast og gróðursetjið þær að vori eða snemsumars næsta ár. Sumargræðlingar eru teknir af hálftrénuðum viði, 5-8 sm langir með hæl er hægt að taka í júlí-ágúst og settir í sólreit. Plantið þeim hverjum í sinn pott strax og þeir fara að rætast. Það getur verið erfitt að láta þessa græðlinga lifa af veturinn. Best er að hafa þá í gróðurhúsi eða sólreit þar til næsta vors áður en græðlingarnir eru gróðursettir í beð. Haustgræðlingar eru hafðir í sólreit, þeir ættu að rætast snemma næsta vor. Setjið þá í potta þegar þeir eru orðnir nógu stórir til að handfjatla þá og plantið þeim út að sumrinu ef þeir hafa vaxið nógu mikið að öðrum kosti eru plönturnar hafðar í sólreit næsta vetur og gróðursetjuð þær næsta vor. -----------------Sveiggræðsla á ársprotum fer fram í júlí-ágúst. Sveiggræðslan tekur 15 mánuði.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beðkanta á trjábeðum, sem stakstæður runni. Auðræktuð planta, sem þrífst í flestum jarðvegsgerðum, en síst þó í mögrum og þurrum. Vex vel í þungum jarðvegi. Plöntur sem eru búnar að koma sér vel fyrir þola þurrk. Þrífst best í djúpum, frjóum jarðvegi í sól eða hálfskugga.Það er best ef plantan er í skugga fyrir morgunsól að vorinu. Sumir grasafræðingar álíta að plantan sé ekki annað form af V. opulus sem ber betri aldin, sem var safnað af fyrstu landnemum Ameríku, stundum ræktuð vegna ætra aldina, til eru nokkur afbrigði undir nafni. Aldinin eru mjög eftirsóknarverð fyrir fugla. Sumar heimildir halda því fram að plantan getir frjóvgað sig sjálfa, aðrar halda því gagnstæða fram. Það er líklega best a rækta tvö yrki saman til að fá örugglega aldin og frjó fræ.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur úr sömu sáningu sem sáð var til 1990 og gróðursettar í beð 2000 og 2001, þrífast nokkuð vel, kala lítið. Harðgerður runni sem hefur reynst vel í garðinum.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun erlendis sem ekki hafa verið reynd hér