Garðaflóra

Í gagnagrunninum má finna fróðleik og myndir af yfir 2000 tegundum, tegundaafbrigðum og yrkjum. Grunnurinn er í raun uppkast og alls ekki fullkláraður. Verður unnið í honum næstu árin, bætt við fleiri tegundum, lýsingar endurbættar og settar inn fleiri myndir. Reynt verður að einskorða grunninn við þær tegundir sem reynst hafa vel í ræktun hérlendis. Allar leiðréttingar eru vel þegnar, svo og upplýsingar um reynslu af tegundum og hugmyndir um fleiri tegundir sem ættu þar heima. Senda ábendingu varðandi gagnagrunninn

Hægt er að fletta upp eftir íslensku eða latnesku heiti eða hreinlega slá inn leitarorð sem þarf ekki að vera nema hluti úr íslensku eða latnesku nafni tegundar.

Einnig er í boði gagnagrunnur sérstaklega fyrir flóru Íslands.

Helstu heimildir eru:

  • The New Royal Horticultural Society Dictionary of Gardening - Huxley & al. (London 1992) ( = 1 )
  • The European Garden Flora 1-5, Walters & al. (Cambridge 1984-1997) - ( = 2 )
  • Handbuch der Laubgehölze 1-3, 2, aufl. G. Krüssmann (Berlin Hamburg 1976-1978) ( = 7 )
  • Aðrar mikilvægar heimildir eru Garðblómabók Hólmfríðar Sigurðardóttur, glósur úr Garðyrkjuskólanum frá Hólmfríði Sigurðard., Ólafi S. Njálssyni og fleirum, ýmsar heimildir af netinu og landaflórur fjölmargra landa.
Íslensk heiti Undirtegund Latneskt heiti
Nálapúði Azorella trifurcata
Nálasteinbrjótur Saxifraga x apiculata
Nálasteinbrjótur 'Georg Mendel' Saxifraga x apiculata
Nálaþinur Abies holophylla
Náttskuggi Solanum dulcamara
Nepalbroddur Berberis angulosa
Netjugras Thalictrum venulosum
Netkrókus ssp. reticulatus Crocus reticulatus
Netluklukka Campanula trachelium
Netlykill* Primula reticulata
Netsunna Inula spiraeifolia
Netvíðir ssp. reticulata Salix reticulata
Netvíðir Salix reticulata
Norðmannsreynir Sorbus norvegica
Normannsþinur Abies nordmanniana
Nótarvíðir Salix rotundifolia
Nunnuþrúgur Actaea rubra
Nykurrós Nuphar lutea
Nýrnalyfjurt 'Sissinghurst White' Pulmonaria saccharata
Nýrnalyfjurt Pulmonaria saccharata
Næfurbjörk Betula papyrifera
Næfurheggur* Prunus maackii
Næfursýrena ssp. komarowii Syringa komarowii
Næfursýrena / Bogasýrena ssp. reflexa Syringa komarowii
Næturfjóla (kvöldstjarna) Hesperis matronalis
Næturljós Oenothera fruticosa
Nönnugras Thalictrum diffusiflorum